Hætt!

Sumir treysta á heppnina...en VIÐ treystum á DUREX!!

10.11.2007 22:36:45 / berglind

Góðann og blessaðann daginn!

jámm!
Vitiði ég held einfaldlega að þessi síða sé ekki að meikaða! hihi8)
finnst að við ættum bara að hætta með hana... Hittumst líka svo sjaldann núna eitthvað, og bara... Ég nenni allavegna ekki að vera með hana lengur!
ég er HÆTT!!!
-Berglind;**

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 21:49:01 / frida

crazy!!

jæja.. nú er langt síðan að ég hef bloggað... það halda öruglega flest allir að ég sé ekki með þessa síðu lengur eða hafi aldrei verið með hana..! hehe..

ég er bara ný búin að fá tölvuna mína heim aftur:D eftir að hún var biluð!

en nú eru allir slúttaðir.. af þessari blessuðu síðu:/ við reynum nú samt að hafa hana ennþá.. er það ekki?

en allavegana þá er Hildur farin á krókinn og hefur það bara fínt held ég:D Steiney er farin á ísó og Berglind líka.. og þær eru bara mkög ánægðar skilst mér.. gengur vel og allt það:D Magga er farin á patró að klára grunnskólann þar.! og ég og Klara erum eftir tvær af sex á Þingeyri.!
það er nú samt alveg ágætt hér.. magga mætti samt alveg vera ennþá á þingeyri og koma svo bara með mér í menntó á ak:D
een nei hún þurfti auðvitað að stinga mig af:D nei nei ég fyrirgef henni það alveg... en jáég er bara einhvað að bulla hérna.. veit ekkert hvað ég á að segja.. annað en :
Ég sakna þín svo mikið elsku magga mín;*(L)(L)(L) Dýrleif.. ég sakna þín líka óheyrilega mikið(L)(L);** og allar hinar eg sakna ykkar líka ekkert smá.. samt ekki þér Klara.. múhahah.. nei djók:D

ég sakna þín líka ekkert smá mikið:K(L)(L) og elska þig svo mikið(L)(L)
er alveg ekki búin að sjá þig síðan í fyrradag.. sakna þín samt svo!!


en held að þetta sé komið nóg í bili;*(L)
elska ykkur(L)(L)

-Fríða(H)

ég gleymdi að láta það koma framm að ég elska þig/ykkur líka
               Kristný&Ólöf(L)(L)(L)(L);****

sé ykkur vonandi sem fyrst:K(L)

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 22:02:52 / steiney

Jahá...

Jæja kannski er kominn tími á smá blogg...!!!
Það er ekkert búið að vera að gerast undafarið.. Nema að ég og Berglind erum fluttar á vistina á Ísó og er það fínt.. Hildur er flutt á Krókinn og eftir nokkrar vikur verður hún orðin KRÆKLINGUR, ekki veit ég betur en að hún verður sko busuð, Elísa Ósk ætlar að sjá til þess og vona ég að hún geri það. Magga er flutt á Patró og vonandi líkar henni það bara vel.. Klara er ein með strákunum í stofu því að Fríða er á Vinabæjarmóti sem er allaleiðina á Núpi í Dýrafirði og ekki veit ég betur en að hún hafi það gaman og skemmti sér vel..:lol::D8)

Að okkur Berglindi erum við komnar í busavikuna og verður busun á föstudaginn.. Það er búið að láta helling fyrir og stöndum við okkur bara vel..(Eða ég vona það;):haha:
Kennararnir eru hressir og gaman...

EN ætla að láta þetta gott heita, er að stelast í Snorra tölvu, og Berglind situr sem fastast við sjónvarpið...:$

Þangað til næst...8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.08.2007 19:26:00 / hildur

Jæja stelpur!!!

Jæja..er þessi síða að deyja eða hvað!

Ég veit að ég er ekkert durglegri við þetta frekar sko. En í vetur þá verðiði að lofa mér að gera eitthvað í henni. Setja inn myndir og svona. Bæði myndir úr grunnskólanum (Fríða, Klara og Magga) og úr menntaskólanum (Berglind, Steiney og ég). Mig langar svo að geta fygst með ykkur. Ég á eftir að fara inn á síðuna á hverjum degi sko. POTTÞÉTT!!!!! Og svo skelli ég bloggi og myndum inn líka. Ég held að það verði geðveik sniðugt. Þá er allt svona surprise. Ekki að blogga um eitthvað sem allir vita. Eða myndir sem allir hafa séð. Ef þið fattið hvað ég er að fara.;)

En ég fer 24. ágúst norður og kem svo einhverntímannheim. Í jólafríi eða eitthvað. En ég fer samt suður í september í litla aðgerð.

En ég hef ekkert mikið að segja. En kommentið og segið mér hvað ykkur finnst um þessa hugmynd.

 

Ykkar bestasta.......................Hildur:haha:;)8)

Btw..þessi færsla er ekki skrifuð 5. ágúst heldur 8. ágúst kl: 12:48. Þetta fór eitthvað í rugl.


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 13:57:09 / berglind

Home alone..!

Ákvað að það væri kominn tími á blogg og þar sem enginn annar hefur tíma eða nennir, þá ákvað ég bara að skella hérna inn einu stuttu bloggi;)

 Ég er bara búin að vera ein núna.. alein sko. því mamma og pabbi og strákarnir fóru norður í brúðkaup hjá Gígju, sem er litla systir hennar mömmu. Og amma og afi eru fyrir sunnan. En amma kemur sennilegast heim í kvöld, svo ég fer bara til hennar eftir vinnu á morgun:P

Það er ekkert smá skrítið að vera í 5 manna fjölskyldu og svo fara bara allir og maður er einn í húsinu!! een ég redda mér bara. Eldaði þessa svaka góðu kakósúpu fyrir mig í gærkvöldi:D Ég hefði nú alveg getað eldað pulsur eða hamborgara þar sem maður er alltaf í æfingu niðrí sjoppu:D een mér finnst hamborgarar ekkert það góðir svo...8)

En Hildur er bara að skemmta sér í Eistlandi með fjölskyldunni og hafa það næs. Heyrði í henni umm daginn og þá átti að fara versla og læti bara:P Og ég og Steiney erum bara alltaf að vinna í sjoppunni.. Hittums voða sjaldan... bara þegar við erum að skipta umm vaktir:S og svo svona einstaka sinnum. Magga er að vinna á Patró svo maður sér hana ekkert í sumar.. sennilegast:| Og Klara og Fríða eru að vinna í unglingavinnunni. Ég er heldur ekkert búin að hitta þær mikið:| Rekst svona á þær við og við.

En veðrið er ekki að gera sig þessa dagana. Það er bara komin rigning og læti sko:!:8|  En það er sennilegast bara gott fyrir gróðurinn og allt það. En ekki fyrir brunkuna mína:S Hún er nú samt ekkert svo mikil..:$

en ætla ekki að hafa þetta lengra í bili:P Sjáumst bara;**

-Berglind8)

Ég og Steiney í danmörku:haha:

 Bwahahahahah:haha:

 haha ég eitthvað að tjá mig!!

Magga og Hildur að rifja upp gamala tíma;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 20:18:57 / hildur

Þetta gengur barasta ekki!!!!

Já eins og þið sjáið þá hefur ekki verið mikið að gera á þessari síðu okkar síðustu daga enda vegna þess að það er bara verið að vinna einhverstaðar allar hver í sínu horni (nema ég Steiney og Berglind) :haha:

En já ég hef nú samt alveg  haft tíma til þess að blogga aðeins en hef bara í hreinskilni sagt ekki nennt því. Ég hef líka verið mjög löt við það á minni síðu: www.hillan.bloggar.is 
En ég var bara að vinna í morgunn og var búin kl. 17.00. Svo er ég í fríi morgunn og hinn. Það er fínnt að fá svona "brake" inn á milli, ekki það að þetta sé eitthvað hörkupúl í þessari vinnu. Mér finns hún bara mjög notaleg. Maður vinnur alltaf bara annað hvort fyrri eða seinnipart úr degi og svo er alltaf frí inná milli. Og svo eru launin ekkert þau verstu í þokkabót. Ég ætla alveg að frysta þennan pening sem ég vinn mér inn núna þangað til í haust og vetur þegar ég fer í skólann. En hann á að fara í vasapening eða eitthvað svoleiðis. :$

En talandi um skóla þá fékk ég semsagt inn á Sauðárkróki eða nánar tiltekið í Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra! Skólasetningin er sunnudaginn 26. ágúst. Mamma ætlar að keyra mér og á föstudeginum en skólinn hér (grunnskólinn :haha:) er settur þann dag. Þannig að það passar alveg. Ég verð á vistinni í tveggja manna herbergi en ég er ekkert samt búin að vita nánar um það..með hverjum ég verð eða eitthvað svoleiðis. En þetta verður allt eitt RISASTÓRT ævintýri!! Og ég hlakka SVO til!! Ég veit samt ekki hvort að ég kvíði mikið fyrir en ég er viss um að það kemur bráðum. En annars ætti ég ekkert að vera að kvíða fyrir nema bara það að ég er að fara að heiman og það verður pínu "sjokk" til að byrja með en ég fékk líka aðeins að prufa það í fyrra þegar ég vann á Flúðum. Þannig að þetta verður kannski ekki eins mikið "sjokk".

En núna er eiginlega bara komið að Eistlandsferðinni okkar. Ég trúi því ekki að það sé svona stutt í hana. Þegar við vorum að skipuleggja hana þá var eins og það væru ár og aldir þangað til að við færum. En við förum semsagt suður á sunnudaginn næsta og fljúgum svo út á miðnætti (laugardagur-sunnudagur). Við fengum einhverja svaka flotta gistingu í Keflavík, en fólkið þar geymir bíllinn okkar og keyrir okkur á flugvöllinn og allt.

En ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili. Ég var búin að gera þetta mikklu lengra en svo seifaðist bara þessi bútur.

En þangað til næst.

Ykkar Hildur!!

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 23:01:18 / berglind

eeekkert að gera!!!

Humm hef ekkert að gera. Eða jú.. er að hlaða inn lögum inná spilarann minn.. og það tekur alveg þennan hel***** langan tíma maður..:S

Een allavegna þá fann ég þetta.. á minni leit í gegnum skóginn... nee segi nú bara svona. Uss ekki segja mömmu að ég hafi sagt þetta. Þá verður hún alveg band sjóðandi vitlaus!!!:^)                 Hahahahah nei bara djókur:haha: Ég hef greinilega lært eitthvað í tímum hjá honum Jóni í vetur:D:lol:

en já hér kemur semsagt þetta sem ég fann: :P

B: Likes to flirt.
E: loves to cuddle with their lover
R: Freakin crazy
G: Never let people tell you what to do.
L: gorgeous eyes
I: is always there for true friends
N: Dead sexy
D: Has one of the best personalities ever.
I: is always there for true friends
N: Dead sexy
G: Never let people tell you what to do.
A: Likes to have sex.

Hahha jámm:P:haha:

Nenni ekki að hafa þetta lengra í bili.

-Berglind.. OUT:!::!:;)8)

 Hahah jámm.. ég perrri;)

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 12:52:13 / hildur

Sumar = Vinna!!

Jæja já. Ég ákvað að skella einu bloggi hérna inn en það er allt of langt síðan ég gerði það. En þar sem að það er komið sumarfrí og allir byrjaðir að vinna þá veit ég ekki hversu mikið verður um að vera á síðunni okkar. En við reynum eitthvað auðvitað.

En já ég er byrjuð að vinna í N1 söluskálanum AKA sjoppunni!! :haha: Eins og Berglind og Steiney. Ég er að fara á vakt á eftir kl. 16.00 og á svo að vera á morgunn kl 10.00 en verð ekki vegna þess að ég er að fara suður í jarðarförina hennar Lóu. En svo kem ég heim á miðvikudag og fer á seinnivakt þann daginn. :D

En já ég veit svosem ekkert mikið hvað ég á að segja.........JÚÚ HVAÐ ER Í GANGI!!!

Ég fór í gær á bestu bíómynd í langan tíma. Pirates of the Caribbean. (Man aldrei hvernig það er skrifað) En já. Þessi mynd er algjört æði!! Ég ætla pottþétt aðkaupa mér pakkann þegar hann kemur..þúst með öllum þrem myndunum!! En vá..sko það eru alveg nokkrir kaflar sem eru langdregnir eins og sumir hafa sagt..en atriðin þess á milli láta mann gjörsamlega gleyma því sko. BARA snilld!! Og svo eru líka bara svo frábærir leikarar í henni sem toppa allt toppað!!! En já ég fór á hana með Steiney..Berglind gat ekki komið með, hún var að vinna. Svona verður þetta í allt sumar örugglega..alltaf svona aðskildar. En þannig er nú lífið Guðrún mín. Nei ég segi nú bara svona. En við semsagt þurftum svo að bíða eftir að mamma sótti okkur og við eiddm þeim tíma í Hamraborg og fylgdumst með fólkinu sem labbaði inn og út og framhjá!! HAHAHAHA!!! Svo missti Steiney kristal yfir sig alla!! HAHA!

En já þetta er frekar þunnt hjá mér..þannig að C U later!!!

 

Hildur!


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 21:52:40 / berglind

Grunnskólinn búinn!!!

Já þá er grunnskólinn bara búinn. Var að útskrifast formlega úr honum klukkan 4 í dag!!! Vá ég trúi þessu varla. Ég man rosalega vel eftir því þegar maður var að byrja í fyrsta bekk. Þetta er ekkert smá fljótt að líða!!!

En við í 10 bekk komum semsagt heim úr Danmerkur ferðinni okkar á mánudagsmorgunn.. um 7 leitið og þá var bara farið beint uppí rúmm að sooofa:)
En það var alveg ggggeeeeeeeeeeððððveikt úti!!:P:haha: Við skemmtum okkur öll bara konunglega:D Bara takk fyrir ferðina allir:**;)

En við vorum semsagt með 3 foreldra með okkur. Unni, Eddu og Rakel sem er svo líka kennarinn okkar.
Við gerðum bæði margt og skemmtilegt í þessari ferð okkar. Fórum í Bakken, Tívolí, Siglingu
,
löbbuðum Strikið framm og til baka!! 2 sinnum. Hellingur keypt og læti bara:P;)8)

En nú er maður bara að fara vinna vonandi bráðum. Svo maður eignist nú einhvern pening aftur... 8)

En ætla að deyla því hérna með ykkur hvað ég keypti mér..:D


* hvítar stuttar buxur (svona þægilegar)
* aðrar hvítar stuttar buxur..(svona ná að hnjám)
* flottar gallabuxur
* stuttar gallabuxur
* bleikur hlýrabolur
* svartur og hvítur hlýrabolur
* doppótt hettupeysa
* slatti af undirfötum;)
* belti
* meik
* 3 pör af skóm
* 2 bindi fyrir pabba minn
* 2 treflar fyrir mömmu mína
* hattur, hálsmen og einhverskonar flauta fyrir Arnar
* hálsmen og bangsi fyrir Kristján
* nammi fyrir ömmu
* og slatti af nammi í fríhöfninni;)



Og ég tek það hér með framm að ég borða það ekki ein!!!
heheheheh;):haha::lol:

En ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Þar sem ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa:/.... hehe :P

-Berglind:lol::haha::P

\"\\"\\"\" \"\"við í óvissuferðinni :)

\"\\"\\"\"\"\" moi


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 21:22:47 / berglind

Ferming

Ætla að byrja á því að óska Klöru og Guðbjarti til hamingju með daginn:D Loksins fermd:P

Mér var semsagt boðið í ferminguna hennar Klöru og við stelpurnar..Fyrir utan Steiney:( Sátum allars saman á borði. Hahha þar var hlegið miiiikið:lol: Ég og Magga alltaf að taka einhver þvílík köst og svona... Bara gaman að því. Svo fór ég nú að pæla. Hvað ætli allt fólkið fari svo að segja. Já fermingin henna Klöru heppnaðist bara vel og allt var fínt. Fyrir utan að það voru alltaf einvherjar svaka gelgjur að hlægja og læti sko... pfff hahaha nei segi nú bara svona;):haha:

En svo er bara frí á morgun... og svo snemma á þriðjudaginn leggjum við í hann til Reykjavíkur og svo bara til DANMERKUR!!!!!!!!!!:haha: ohh mig hlakkar svo til! Þetta verður bara stuð!!!;) Ég er meira að segja búin að pakka og allt (ætla samt að finna mér aðeins stærri ferðatösku):D8)  Ég er nefnilega svo mikill snillingur í að pakka niður. ég ofpakka alltaf!!:D En ég passaði mig mjööög vel á því að gera það ekki núna;)

En ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Ætla að reyna að setja einhverjar myndir hérna inn:D

-Berglind:P:haha:;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 16:44:50 / magga

Stuuð!

Góðan og blessaðann daginn gott fólk, aðstandendur, fjölskyldumeðlimir, vinir ogallir hinir líka...haha bull! Það er Margrét sem talar "skipti" hahah muniði eftir þessu?:haha:

ARGGG....var búinn að blogga hérna geeeðveikt blogg áðan, en nei svo ýtti ég á vitlausan takka fjandinn hafi það!!:O
En allavega,,,,ég er svona líka ógeeðslega hress!
ætti að vera að drepast úr þreytu...en er held ég bara með svefngalsa eða e-ð...!

Fór ekki að sofa fyrr en hálf 3 eftir þetta lokaball og vaknaði kl 10 mín í 6 í morgun útaf þessari helvítis hurð,..þegar að pabbi var að fara út!
en já, ég bara glaaaðvaknaði og skellti mér í sturt, þreyf og svona:D

Hehe en allavega...ætla að sleppa því að blogga eitthvað svakalega í þetta skipti, ég myndi örugglega segja e-ð sem ég ætti eftir að sjá eftir að hafa sagt!
hahah þessi setning hljómar skringilega..:haha::$

Eeeen allavega, ég var að missa mig í paint um daginn!8)
hvernig finnst ykkur stelpur?:P







-Magga músarassgat!-:haha:

» 9 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 19:18:36 / berglind

Hummm og haaa

Já... ákvað að blogga hérna pínu;) Því ég er ekkert að gera:$

Nú eru prófin byrjuð í skólanum.. og maður bara á fullu að læra fyrir þau (eða þannig sko) hehe8) En já það var enska í dag.. við í 10 vorum bara með einhverja ritun sem við áttum að skrifa um. Fengum blað um daginn með nokkrum valmöguleikum til þess að skrifa umm. Já og ég held bara að mér hafi gengið nokkuð vel:D

En í gær var semsagt lokadagurinn í starfskynningunum.. Ég byrjaði á því að fara í Hamraborg8) Þar var stuð:D Byrjaði inní eldhúsi að smyrja samlokur og pakka þeim inn og svona. Svo fór ég framm og fékk að afgreiða og fylla nammi í hyllurnar:D Svo svona hálftíma áður en ég var búin fór ég aftur inní eldhús og fékk að hjálpa til með pizzurar:lol: Svo þegar ég var að fara.. þá spurði Gísli hvort mig langaði í pizzu.. og ég bara já. Hann sagði mér þá að fara inní eldhús og búa mér til pizzu alveg sjálf:P Hún heppnaðist bara nokkuð vel og ég, Hildur og Ásti borðuðum hana í hátegismat:haha: Hún var bara nokkuð góð skal ég segja ykkur:D

En ég verð að fara.. Tölvan að verða batteríslaus..

Heyri í ykkur:haha: -Berglind;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 21:02:17 / magga

ÓJÁAA!

Frábær helgi maður!!

(Vara þá við sem þola ekki gelgju, ég er á hámarki akkurat þessa stundina)

Ójá, þessi helgi var sko hrein snilld!

Föstudagurinn fór bara í chill á Ísó með Fríðu minni..!
Við byrjuðum á fundi með Árna og hinum krökkunum sem fara í “utanlandsferðina” hahaha sorglegt, ég er ennþá að hlægja af þessu!:haha:

Svo var bara fríkað út á ísó...Grillaðar pulsur, blöðrur, pennar, rósir og ég veit ekki hvað og hvað...bara útum allt! Ójá, við Fríða (og Klara í einhverntíma) löbbuðum þarna um allan bæjinn með blöðrur og rósir, svaka svalar8)...þangað til okkur var orðið svooo kalt að við gátum ekki verið úti mikið lengur....
heyrðu já, þá var bara skellt sér til Guðnýjar og Emils...hahaha þar var sko MIKIÐ hlegið maður! Shit, hef bara ekki skemmt mér svona vel á ísó í laaangan tíma!:D

En allavega...svo var bara farið frá Guðnýu á/í féló...hehe fórum fyrst og fengum okkur að borða og komum við í bíóinu og e-ð...hehe gaman af því:haha:
.....Svo vorum við í svo miklu flippi að við gerðum í því að bögga fólkið (það fáa fólk sem var þarna) með því að horfa á það tímunum saman,...hahah shit hvað þetta var fyndið!
En svo þegar við nenntum ekki að standa í því lengur þá baaara fórum við heim! Hehe ísó er plebba bær:D

En já..svo er það Laugardagurinn!
Hann fór í það að slaka á, vera með Fríðu og svo í Durex-hitting...ójá, haha geggjað stuð maður...! horfuð e-ð á eurovison, dönsuðum eins og hálvitar, hlógum og grenjuðum! Hehe þetta var bara svona bland af öllu, bara mjööög nice!
og jú svo gerðum við eitthvað sem ég hef ekki gert síðan ég var litil...
Svona prakkarastrik!!!
Shit, hvað það var mikið stuð, komst ekki upp um neina okkar nema mig og Klöru!:O
hahahah og við vorum svooo hræddar að við hlupum út hahaha eins og Klara segir:,,þetta var svona...RUN FOR YOUR LIFE!!!” haha, adrenalínið eða hvað það heitir var í hámarki! (kann ekkert að orða þetta, en þið vitið hvernig þetta er þegar maður verður svona skííít hræddur og veit að maður er að gera e-ð sem maður á ekki að vera gera og svo er maður bara BÖSTED!) hahah váhh, mér brá svooo mikið...ég á örugglega aldrei eftir að ná mér skohh!:O Hehe þetta var snilld:haha:

En svo var bara chillað fram á bláa nótt:haha:
Áttum mjög skemmtilegt samtal við hann Þórð Inga, hahaha krúttið maður!
.....svo var bara farið að sofa e-ð um 5-6 held ég og svo vöknuðum við Fríða “eldsnemma” til að fara að vinna!:O
Heyrðu já, drulluðum okkur á fætur og rukum niður í “hús” og haldiði að bííííb kallarnir hafi ekki bara verið á svo miklu djammi kvöldið áður að þeir mættu ekki!
Vá, við biðum eftir þeim í meira en fokking klukkutíma fjandinn hafi það nú! Svo endaði með því að við bara fórum heim...nenntum ekki að standa í þessu lengur! Svo var hringt og spurt hvort við værum ekki að koma að vinna og ég sagði bara: neihh!:O

Rugludallakallar! Maður á ekkert að vera að vinna á sunnudegi...hehe:D

En ætla ekki að lengja þetta meira, þetta er alltof langt..

DUREX...!

-takk fyrir mig, Magga8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 18:45:21 / steiney

Er í ég held væmniskasti dauðans...

·  Ást byrjar með brosi stækkar svo í koss og endar með tárum. Ekki gráta yfir neinum sem grætur ekki yfir þér.
  ·  Traustir og góðir vinir eru erfiðir að finna en það er erfiðara að fara en algerlega ómögulegt að gleyma .
·  Þú getur aðeins farið eins langt og þú vilt fara,gerðir þínar eru betri en 1000 orð.
·  Það erfiðasta sem hægt er, er að sjá einhvern sem þú elskar, elska einhvern annan.
·  Ekki láta e-ð slæmt úr fortíðinni halda aftur af þér því þú ert að missa af öllu því skemmtilega sem er í nútíðinni.
·  Lífið er svo stutt, að ef þú lítur ekki í kring um þig stundum og stundum gætiru misst af því.
·  Vinir eru eins og fjögurra blaða smárarnir, erfiðir að finna og mjög heppin þegar hann finnst.
·  Sumir gera heiminn sérstakan bara með því að vera í honum.
·  Bestu vinir eru systikinin sem Guð gleymdi að gefa okkur
·  Ef að það særir að líta aftur og þú þorir ekki að líta fram á við þá geturu litið til hliðanna og vinur þinn er þar.
·  Alvöru vinátta endar aldrei. Alvöru vinir eru til eilífðar.
·  Vinir eru eins og stjörnur þú sérð þá ekki alltaf en veist að þeir eru alltaf þar.
·  Ekki vera leiður því þú veist aldrei hver verður ástfanginn af brosinu þínu.
·  Hvað gerir þú þegar eina manneskjan sem getur hætt að láta þig gráta er sá sem lét þig fara að gráta.
·  Enginn er fullkominn þangað til þú verður ástfangin af honum
·  Allt er gott á endanum. Ef e-ð er ekki gott þá er það ekki endirinn.
·  Margir geta farið inn og út úr lífi þínu en aðeins vinir og þeir sem þér þykir vænt um skilja fótspor eftir í hjartanu þínu .
·
 Ástin er einstök og þegar þú finnur hana, gríptu þá tækifærið, því að stundum er ekki aftur snúið. 
·  Láttu á hverjum degi þá sem þú elskar vita að þú elskir þá því að einhverntíman þarf síðasti dagurinn að renna upp. 
·  Ástin er eins og rós...Þú verður að gæta þín á þyrnunum !
·  Ástin er eins og blóm...annaðhvort blómstrar það eða fölnar, og ef blómið sem fölnar var stórt verður það lengi að verða að mold aftur. 
·  Aldrei byrgja tilfinningarnar inni, það lesa ekki allir hugsanir !
·  Ástinni fylgja engin takmörk


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 16:05:13 / steiney

Huxi hux...

Kannski ég ætti að blogga smá fyrst ég hef ekkert að gera... !!!

En helgin er búin að vera snilld8)
Við stelpurnar 6 hittumst í gær og varð það ekkert smá gaman.. margt gert sem hefði mátt sleppa:$... Ég dottaði í eitthvað korter meðan hinar voru á fullu að tala:) Og fórum við að sofa klukkan 04:30 eða seinna, Rakel kom nefnilega og skammaði okkur...

Þannig er mál að vexti að við erum soldið forvitnar, það mætti segja það...
Við vorum í herberginu hennar Hildar í svaka svefngalsa sem hefur sést.. Búnar að vera á msn mest allt kvöldið og pirra margt fólk:klikk::$
Við vorum semsagt í herberginu hennar Hildar að tjilla.. Þá heyrðum við mikið af röddum fyrir utan húsið og við náttulegar ALLAR í gluggann að fylgjast með;)
Fólkið var í fótbolta, en við sáum ekki nógu vel þannig 3 af okkur datt í hug að fara ÚT!!! og fylgjast með þaðan, við fórum 2 út og síðan inn að ná í hinar stelpurnar... Við ætluðum að fara fyriri ofan hús og læðast í garðinn til að geta fylgst betur með og hlegið meira... Þegar við vorum alveg að fara út opnaðist hurðin upp á  efrihæðina og Rakel kallaði eitthvað, drulliði ykkur inn stelpur, hún var soldið reið þannig að það fyrsta sem Magga og Klara gerðu var að hlaupa út, Rakel sagði Hey... Ef fólkið getur ekki skemmt sér í friði án þess að það sé verið að glápa á það þá getiði bara PILLAÐ ykkur heim... Og allar stelpurnar í sjokki og fóru inní herbergi undir sæng..8) Og grenjuðu svo úr hlátri því þetta var ekkert smá fyndið:haha::lol::klikk: HAHA...!!!

Svo í morgun þegar Rakel kom inn þá hló hún bara af þessu uppátæki okkar..:klikk:
Þetta er sko í fyrsta sinn sem ég er verulega Böstuð... :klikk::lol::haha:

En læt þetta gott heita í bili...

-Steiney Ninna


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
RSS tengill
N�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?½tt!!!!!!
Nýtt slúður og ný gullkorn!!!!
Danm�?�?�?¶rk
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1731 dögum